| Fréttir |
|
Helgina 1-2 september 2007 var haldið ÍSMÓT, Íslandsmeistaramót fagfélaga í Samtökum Iðnaðarins í Laugardalshöllinni. Ljósmyndastofa Erlings tók þátt í henni . Við erum mjög stolt af því að mynd frá okkur var valin besta ljósmyndin ásamt mynd Lárusar Karls Ingasonar. Mynd Erlings prýðir nú forsíðu heimasíðunnar okkar.
Lárus Karl, Magnús Hjörleifsson og Erling með verðlaunin. (ljósm Odd Stefán) Við vorum með skemmtilegan leik í gangi á sýningunni. Gestum bauðst að giska á hversu margar myndir væru á gólfinu á básnum okkar. Þátttaka var mjög góð. Myndirnar voru 166. Enginn var með rétta tölu, en nokkrir voru með tölurnar 165 og 167. Við munum draga úr þeim nöfnum og tilkynna það fljótlega. Einnig mælum við með því að fólk skrái sig í gestabókina. Við munum draga úr nöfnum þar og gefa myndatöku.
10. okt. 2007 Dregið hefur verið úr leiknum sem var í gangi á ÍSMÓT. (sjá frétt hér að ofan). Vinningshafi er Helga Björt og bíður hennar vegleg myndataka. Henni hefur verið tilkynnt um vinninginn, og hlökkum við til að taka á móti henni. Einnig drógum við eitt nafn úr gestabókarpottinum. Sú heppna heitir Perla Ásmundsdóttir, og hlýtur hún einnig veglega myndatöku í verðlaun. Við hvetjum fólk til að skrá sig í gestabókina, því annað slagið munum við gleðja einhvern sem þar er skráður.
25. okt 2007 Helga Björt var vinningshafi í getraunaleiknum okkar á Ísmót 2007. Hún heimsótti okkur á ljósmyndastofuna til að taka á móti gjafabréfi.
Helga Björt og Erling handsala vinninginn. (Ljósm.: Þorsteinn Jónas Sigurbjörnsson) |